Skilmálar

FYRIRTÆKJAUPPLÝSINGAR

Jamal.is er netverslun rekin af:
Karitas Cosmetics ehf.
kt.580820-0500
vsknr. 138510


AFGREIÐSLA OG AFHENDING PANTANA

Afgreiðslutími pantana er 2-3 virkir dagar, hægt er að velja um að fá pöntun senda heim eða sótta á næsta pósthús. Vinsamlegast athugið að ef að varan er send heim og viðtakandi er ekki heima þegar Íslandspóstur kemur með pakkann, þá er hún geymd á næsta pósthúsi og viðtakandi sækir þangað. Ef upp kemur sú staða að varan er ekki til á lager þá munum við hafa samband og tilkynna hvenær varan verður tilbúin, eða endurgreiða ef þess ar óskað. Jamla ber enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Jamal til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda sem þarf að sækja bætur til Íslandspósts.

GREIÐSLA OG SENDINGARKOSTNAÐUR

Hægt er að greiða með kredit- og debetkortum. Jamal geymir engar kortaupplýsingar, en þær eru skráðar inn hjá Borgun kortaþjónustu í vottuðu og dulkóðuðu umhverfi.

Pakkar eru sendir innanlands með Íslandspósti, sendingarkostnaður er 1390 kr.

VERÐ

Öll verð í netverslun eru gefin upp með virðisaukaskatti og við það bætist sendingarkostnaður. Jamal áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara og leiðrétta verð í netverslun sé það ranglega skráð inn.

AFSLÁTTUR 

Þegar það er 3 fyrir 2 tilboð þá er ódýrasta varan frí með. Ef um ræðir tilboð í fleiri vöruflokkum í einu þá gildir tilboðið að ódýrasta varan fylgir með.

VÖRUSKIL

Hægt er að skila vöru innan 14 daga frá kaupum og fá fulla endurgreiðslu. Þú getur haft samband við jamal@jamal.is til þess að óska eftir skilum eða skiptum yfir í aðra vörur. Endurgreiðsla kemur í sama formi og greitt var fyrir vöruna í upphafi. ATH ekki er hægt að skila vörum sem eru keyptar á útsölu. Athugað að til þess að skilavara sé móttekin verður hún að vera ónotuð í upprunalegum og óskemmdum umbúðum. Við endurgreiðslu á vöru sem hefur verið afhent er sendingarkostnaður ekki endurgreiddur.

GÖLLUÐ VARA

Ef galli kemur uppí vöru innan tveggja mánaða frá kaupum á viðskiptavinur rétt á nýrri vöru og munum við senda hana án kostnaðar. Einnig greiðum við kostnað af því að senda gölluðu vöruna til baka. Hægt er að fá endurgreiðslu af gölluðum vörum ef viðskiptavinur óskar þess að fá ekki vöru í staðin.

TRÚNAÐUR

Jamal heitir fullum trúnaði um upplýsingar sem gefnar eru upp í tengslum við netverslun og mun undir engum kringumstæðum afhenda þessar upplýsingar til þriðja aðila, nema ef um lögreglumál sé að ræða. Um meðferð allra persónuupplýsinga fer í samræmi við lög nr. 77/2000 um persónuvernd.

LÖG UM VARNARÞING

Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Mál sem rísa kunna vegna samnings þessa skal reka fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Ef þú hefur einhverja ábendingu eða skilaboð til okkar hafðu þá samband á jamal@jamal.is